Event

Hinn helgi hringur / The Medicine Wheel

Advertisement

Hinn helgi hringur eða Hjól lífsins...kortleggjum líf okkar saman.
Námskeið er haldið í Samskara Retreat Center í Laugarási og er einungis fyrir konur. Námskeiðið fer fram á ensku.
Umsjón: Catrin Otto.
Verð fyrir námskeiðið með gistingu í 3 daga og mat er 128.000, kr.

Á þessu námskeiði könnum við saman visku Hins helga hrings og frumkraftana fjóra: Jörð, loft, eld og vatn.

Hinn helgi hringur eða Hjól lífsins hefur verið notað í þúsundir ára víðsvegar um heiminn. Þetta öfluga verkfæri sem tengist inn í alla menningarheima kemur úr shamanisma og er notað til að kortleggja flæði lífsins.

Hinn helgi hringur býður þér uppá að skoða á hvaða stað þú ert í lífinu, persónuleg vandamál eða átök út frá fjórum mismunandi sjónarhornum. Hringurinn býður uppá ný sjónarmið og jafnvel óvæntar lausnir á persónulegum aðstæðum.

Farið verður vandlega í hvernig hægt er að vinna með orkuna í frumkröftunum fjórum til að geta flætt áreynslulaust í gegnum vinnuna.

Seiðtromman og “innri ferðalög” eru kjarninn í þessu námskeiði. Notuð er áhrifarík trommutækni (Shamanic Journeying) þar sem endurtekinn taktfastur trommusláttur er notaður til að komast í djúpt hugleiðsluástand. Við munum einnig mála, fara í deilihring og innsæis-göngutúra í náttúrunni til að undirbúa okkur fyrir einstaklingsvinnu með frumkröftunum fjórum og Hinum helga hring.

Sköpunarþjálfarinn og shamaníski leiðbeinandinn Catrin Otto hefur bæði kennt og unnið með einstaklingum síðan um árið1990 í þeim tilgangi að færa shamaníska náttúruvisku og sköpun aftur inní líf fólks.

Þetta er einstakt tækifæri fyrir konur til að finna lífskraftinn og kortleggja líf sitt í gegnum frumkraftanna fjóra undir leiðsögn Catrínar.
-----------------------------------------
The Medicine Wheel...a Map of your life.
Workshop for women only. Facilitator: Catrin Otto.

In this workshop we will explore together the wisdom of the Medicine wheel and the Power of the four Elements: Earth, Air, Fire and Water.

The Medicine Wheel, Medicine Circle or Wheel of life, has been used for thousands of years around the world as a fundamental shamanic map and cross-cultural tool to navigate the flow of life.

The work with the Medicine Wheel allows you to see your life situation, a personal problem, or conflict out of four different perspectives.

It offers new insights and unexpected solutions to your personal situation.

Drumming and „Inner Journeys" will be an important part of our workshop. An effective drumming technique (Shamanic Journeying) is used where repetitive rhythmic drumming is used to enter a deep meditative state. We will use painting, talking circles and intuitive walks in nature to prepare ourself, for our individual work with the four Elements and the Medicine Wheel.

Understanding how to work well with the energies of the different directions can mean the difference between feeling peaceful, supported, clear and effortless versus feeling unsupported, chaotic and struggling.

Creative Coach, Shamanic Practitioner Catrin has taught and worked with individuals and groups, since the 1990s, helping to bring shamanic nature based wisdom and creativity back into people's lives.



Advertisement
Share with someone you care for!

Best of Selfoss Events in Your Inbox