Event

Skotthúfan 2025

Advertisement

Skotthúfan 2025 verður haldin í Stykkishólmi 28. júní. Í ár fögnum við því að þjóðbúningadagur hefur verið haldinn í Stykkishólmi í 20 ár! Undirbúningur dagskrár stendur sem hæst þessar vikurnar og verður dagskráin birt eins fljótt og vera má.
Við treystum á veðurblíðu að venju og hlökkum til að sjá ykkur öll á búning.
Dagskráin verður sem hér segir:
11 - 17 Norska húsið: Komið og rifjið upp Þjóðbúningadag Byggðasafnsins í 20 ár

Ljósmyndasýning í tilefni af þjóðbúningadegi safnsins sem haldinn hefur verið í 20 ár. Svipmyndir frá liðnum árum.

Skotthúfa Auðar Laxness verður kynnt í safnbúðinni.

Æðarsetur Íslands & Sjávarborg Café: Komdu og fáðu þér kaffi
Æðarsetur Íslands (Opið 13-17) og Sjávarborg Café (Opið 12-17) bjóða búningaklæddum gestum upp á kaffi og þjóðlegar veitingar í tilefni dagsins. Öll velkomin.

12 - 16 Tang & Riis: Komið og kaupið! Farandverslun Heimilisiðnaðarfélags Íslands

12 - 16 Tang & Riis: Komið og kniplið!
Komið og kniplið, kynnist skemmtilegri handverksaðferð hjá Heimilisiðnaðarfélaginu. Gestir geta fengið að prófa.

12 - 16 Vinnustofan Tang & Riis: Komið og skoðið freyjur og fugla Sýning Ingibjargar H. Ágústsdóttur mæðgur opin í vinnustofu í kjallara.

12 - 14 Gamla frystihúsið, Aðalgata 1: Komið og lærið að kveða Atli Freyr kennir kveðskaparlist, hefur þú prófað að kveðast á?

14 - 16 Gamla frystihúsið, Aðalgata 1: Komið og lærið að dansa
Félagar úr Þjóðdansafélagi Reykjavíkur kenna áhugasömum íslenska þjóðdansa.

16:00 Myndataka við Norska húsið
Þjóðbúningaklæddir gestir sitja fyrir á árvissri mynd hátíðarinnar.

16:15 Þjóðdansar á Plássinu: Komdu og stígðu dans
Félagar úr Þjóðdansafélagi Reykjavíkur taka sporið fyrir utan Norska húsið. Dansaðir verða íslenskir þjóðdansar og gestum gefst tækifæri að taka þátt í dansinum.

18 - 22 Hótel Fransiskus: Komdu á kvöldvöku
Opið hús frá kl. 18 - 22 í morgunverðarsal Fransiskus gengið inn frá bílastæði sunnan megin.
Súpa borin fram frá kl. 19 á meðan birgðir endast. Verð fyrir súpu kr. 2.000 Skráning nauðsynleg - https://forms.gle/xGPyAfsuNJapzm5f8

Kvöldvaka hefst kl. 20 Kvöldvökustjóri: Eydís Gauja.
Þjóðbúningaspurningakeppni, kveðskapur, Eyjólfur Eyjólfsson verður með langspilskynningu og tónlistarflutning með hjálp gesta, samsöngur og fleira.



Advertisement
Share with someone you care for!

Best of Patreksfjörður Events in Your Inbox