Þann 27. nóvember klukkan 12:00 munu söngnemendur úr Tónlistarskóla FÍH, Bríet Vagna Birgisdóttir, Guðmundur Daníel Erlendsson og Móheiður Guðmundsdóttir bjóða upp á ljúfa hádegistónleika með vetrarlegu ívafi á Bókasafni Kópavogs. Um undirleik sér Jóel Fjalarsson, píanisti. Á tónleikunum verða flutt bæði íslensk og erlend lög en þema þeirra er vetur.
Bríet Vagna er 22 ára gömul vestfirsk söngkona sem stundar nám við Tónlistarskóla FÍH. Hún hefur verið að koma fram á hinum ýmsu sviðum allt frá grunnskólaaldri. Bríet hóf gítar- og söngnám við tónlistarskóla Ísafjarðar árið 2017 en fluttist til Reykjavíkur árið 2022 til að hefja nám við Tónlistarskóla FÍH. Nú er hún á framhaldsstigi í rytmískum söng og stefnir á að ljúka framhaldsprófi vorið 2026.
Guðmundur Daníel Erlendsson stundar nám í rytmískum söng við Tónlistarskóla FÍH og er nú kominn á sitt þriðja ár í skólanum. Ásamt því hefur hann einnig lært á píanó, klassískt og rytmískt, frá 5 ára aldri við hina ýmsu tónlistarskóla. Guðmundur er ekki einungis í námi heldur bregður hann oft á leik á tónleikum eða sýningum hér og þar, en síðastliðið sumar hélt hann fjáröflunartónleika með vinum sínum og vandamönnum og er búinn að halda ófáa tónleika með hljómsveitinni sinni Abbadís. Meðfram tónlistinni er hann útskrifaður af listabraut Verzlunarskóla Íslands og er nú á þriðja ári í Háskólanum í Reykjavík þar sem hann er að læra lögfræði.
Móheiður Guðmundsdóttir stundar nám í rytmískum söng við tónlistarskóla FÍH. Hún er fædd og uppalin á Akureyri og hefur sungið frá unga aldri. Hún lærði áður við Tónlistarskólann á Akureyri bæði að syngja og spila á gítar.
Jóel Fjalarsson stundar nám í jazzpíanó við tónlistarskólann MÍT. Hann byrjaði ungur að spila á píanó í kirkju og hefur í mörg ár tekið virkan þátt í kirkjustarfi þar sem hann hefur m.a. spilað á samkomum, brúðkaupum, útförum og öðrum tónlistartengdum viðburðum. Hann hefur einnig tekið þátt í ýmsum öðrum verkefnum, svo sem á böllum og tónleikum. Nokkur ár dvaldi Jóel í Ástralíu þar sem hann dýpkaði skilning sinn á tónlist og þróaði áhuga á hljóðhönnun og hljóðgervlum.
Þriðja árið í röð bjóða framhaldsnemendur af söngdeild Tónlistarskóla FÍH til ljúfra hádegistónleika á Bókasafni Kópavogs. Tónleikarnir fara fram síðasta fimmtudag hvers mánaðar en þar stíga tónlistarstjörnur framtíðarinnar á stokk með spennandi blöndu af gömlu og nýju, lög sem öll þekkja í bland við sjaldheyrðari smelli.
Tónleikarnir standa yfir í um hálfa klukkustund og eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis.
You may also like the following events from Bókasafn Kópavogs: