

# Event Details

- **Event Name**: KVIKUSKRIF // 4 vikna námskeið með Guðrúnu Evu & Láru
- **Event Start and End Date**: Wed, 11 Feb, 2026 at 06:30 pm
- **Event Description**: KVIKUSKRIF með Guðrúnu Evu Mínervudóttur og Láru Rúnarsdóttur er fjögurra vikna námskeið í Móum Studio. Kennt er á miðvikudögum frá kl. 18.30 - 20.30 (gott að gera ráð fyrir 30 mín aukalega ef þarf) frá 11. feb - 4. mars. Hámarksfjöldi er 15 manns.

Fyrsti tíminn leiðir okkur inn að kviku með hugleiðslu, verkefnum, deilingu og slökun. Á milli tíma skrifum við okkur dýpra, en í samverunni við eldinn fáum við tækifæri til að deila og hlusta á kvikuskrif annarra. Fimm lesa upp í hverjum tíma og eftir hvern upplestur eru umræður um textann sem Guðrún Eva leiðir. Samræðan er römmuð inn af hugleiðslu, kakóathöfn og djúpslökun við lifandi tónlist. 

Við lítum á kvikuskrifin sem bókmenntatexta, skrifaðan með áheyrendur og lesendur í huga. Því færum við okkur frá dagbókarskrifum, þar sem orð liggja í felum, yfir í það að snerta aðrar sálir með orðum sem fá að sjást og heyrast.

Ferlið getur verið afar heilandi og djúpt, það getur hreyft við á óþægilegan hátt eða mýkt gamlar sorgir. En það getur einnig tendrað eitthvað stórbrotið sem legið hefur í dvala. 

Trúnaði er heitið og biðjum við þátttakendur að virða það.

Guðrún Eva og Lára Rúnars leiða saman hesta sína á þessu námskeiði sem þær hafa í hyggju að halda áfram að móta og fága eftir leiðbeiningu og hollráðum ykkar sem takið þátt. 

Guðrún Eva er rithöfundur og ritlistarkennari 

Lára Rúnars er eigandi Móa, tónlistarkona, kynjafræðingur og jógakennari.

Verð 49.000 &amp; innifalið aðgangur að öllum opnum tímum Móa Studio á meðan á námskeiði stendur. Hægt er að fá kvittun fyrir endurgreiðslu úr stéttarfélagi. 

Skráning hér:
https://shop.moarstudio.is/products/kvikuskrif-4-vikna-namskeid-med-gudrunu-evu-laru-mid-11-feb

20% afsláttur fyrir áskriftahafa. 10% afsláttur fyrir fólk með örorku, námsfólk &amp; eldra fólk. Fyrir afsláttinn sendið póst á moar@moarstudio.is.

Umsagnir með síðasta námskeiði KVIKUSKRIFA.

“Kvikuskrif er námskeið sem leiddi mig nákvæmlega þangað sem ég vildi fara. Mig langaði að komast að því hvað ég þyrfti að segja, finna leið að því sem mér lá helst á hjarta og skapa frásögn, mína sögu og segja hana upphátt. Þær Lára og Guðrún Eva veittu mér einstaka umgjörð og leiðsögn, örugga leið til að komast nær sjálfri mér og trúa á sköpunarkraftinn innra með mér. Þetta er námskeið fyrir þau sem vilja skrifa af einlægni og alvöru, hvort sem það er fyrir sig sjálf eða allan heiminn.” – Ágústa

“Þetta námskeið var ekki bara um skrif, heldur ferðalag inn á við. Ég hafði aldrei skrifað áður, en í gegnum krefjandi og fallegt ferli fann ég röddina mína og óx á þann hátt sem erfitt er að setja í orð." - Ásta Soffía
- **Event URL**: https://allevents.in/hafnarfj%C3%B6r%C3%B0ur/kvikuskrif-4-vikna-námskeið-með-guðrúnu-evu-and-láru/200029348565902
- **Event Categories**: 
- **Interested Audience**: 
  - total_interested_count: 16

## Ticket Details


## Event venue details

- **city**: Hafnarfjörður
- **state**: GU
- **country**: Iceland
- **location**: MÓAR studio
- **lat**: 63.969533293264
- **long**: -21.899415850639
- **full address**: MÓAR studio, Bolholt 4, 2.hæð,Grindavík, Hafnarfjörður, Iceland

## Event gallery

- **Alt text**: KVIKUSKRIF // 4 vikna námskeið með Guðrúnu Evu &amp; Láru
  - **Image URL**: https://cdn-az.allevents.in/events1/banners/9187bbc8ed2cb460a9fafdfb99e39e89b049dc4d6ad630cb1ef1ee7b9b7d68ee-rimg-w1200-h676-dcf5f4f2-gmir?v=1768669298

## FAQs

- **Q**: When and where is KVIKUSKRIF // 4 vikna námskeið með Guðrúnu Evu & Láru being held?
  - **A:** KVIKUSKRIF // 4 vikna námskeið með Guðrúnu Evu &amp; Láru takes place on Wed, 11 Feb, 2026 at 06:30 pm to Wed, 11 Feb, 2026 at 06:30 pm at MÓAR studio, Bolholt 4, 2.hæð,Grindavík, Hafnarfjörður, Iceland.
- **Q**: Who is organizing KVIKUSKRIF // 4 vikna námskeið með Guðrúnu Evu & Láru?
  - **A:** KVIKUSKRIF // 4 vikna námskeið með Guðrúnu Evu &amp; Láru is organized by MÓAR studio.
- **Q**: Who is this event for? Is it right for me?
  - **A:** KVIKUSKRIF // 4 vikna námskeið með Guðrúnu Evu &amp; Láru is ideal for curious learners, students, and skill-builders looking to gain hands-on knowledge and practical expertise in a focused, interactive setting. Whether you're a first-time attendee or a longtime enthusiast in Hafnarfjörður, this event is thoughtfully curated to deliver a standout experience worth every moment. If KVIKUSKRIF // 4 vikna námskeið með Guðrúnu Evu &amp; Láru sounds like your kind of event, don't wait - spots fill up fast.

## Structured Data (JSON-LD)

```json
[
    {
        "@context": "https://schema.org",
        "@type": "Event",
        "name": "KVIKUSKRIF // 4 vikna námskeið með Guðrúnu Evu &amp; Láru",
        "image": "https://cdn-az.allevents.in/events1/banners/9187bbc8ed2cb460a9fafdfb99e39e89b049dc4d6ad630cb1ef1ee7b9b7d68ee-rimg-w1200-h676-dcf5f4f2-gmir?v=1768669298",
        "startDate": "2026-02-11",
        "url": "https://allevents.in/hafnarfj%C3%B6r%C3%B0ur/kvikuskrif-4-vikna-námskeið-með-guðrúnu-evu-and-láru/200029348565902",
        "location": {
            "@type": "Place",
            "name": "MÓAR studio",
            "address": {
                "@type": "PostalAddress",
                "streetAddress": "Bolholt 4, 2.hæð,Grindavík",
                "addressLocality": "Hafnarfjörður",
                "addressRegion": "GU",
                "addressCountry": "IS"
            },
            "geo": {
                "@type": "GeoCoordinates",
                "latitude": "63.969533293264",
                "longitude": "-21.899415850639"
            }
        },
        "eventAttendanceMode": "https://schema.org/OfflineEventAttendanceMode",
        "description": "KVIKUSKRIF með Guðrúnu Evu Mínervudóttur og Láru Rúnarsdóttur er fjögurra vikna námskeið í Móum Studio. Kennt er á miðvikudögum frá kl. 18.30 - 20.30 (gott að gera ráð fyrir 30 mín aukalega ef þarf) frá 11. feb - 4. mars. Hámarksfjöldi er 15 manns.\n\nFyrsti tíminn leiðir okkur inn að kviku með huglei",
        "organizer": [
            {
                "@type": "Organization",
                "name": "MAR studio",
                "url": "https://allevents.in/org/mÓar-studio/26088275"
            }
        ]
    }
]
```