

# Event Details

- **Event Name**: Jógakennaranám 2026-2027
- **Event Start and End Date**: Sat, 06 Jun, 2026 at 10:00 am (+00:00)
- **Event Description**: Skráning í jógakennaranámið 2026-2027 er hafin!

Amarayoga býður upp á jógakennaranám sem er skráð hjá Jógakennarafélagi Íslands og Yoga Alliance of America. Það merkir að að minnsta kosti lágmarkskröfum er mætt í hverjum lið kennslunnar, sögu og heimspeki, anatómíu og hreyfifræði, kennslutækni, siðferði jógakennarans, osfrv. Eftir námið eiga útskrifaðir nemar greiðan aðgang að Jógakennarafélagi Íslands og Yoga Alliance of America (YA). Skráning hjá YA auðveldar svo þeim sem vilja starfa eða læra meira erlendis. 

Eingöngu er tekið á móti 12 í hvern hóp til að tryggja að tryggja að nemarnir hafi góðan aðgang að kennara meðan á náminu stendur. Útskrifaður nemi verður hluti af samfélagi Amarayoga kennara sem heldur hópinn á Facebook.

Þetta nám veitir alþjóðleg réttindi til að kenna hefðbundna jógatíma, hatha yoga og vinyasa.

Þetta verður 17. hópurinn sem leggur af stað í þetta skemmtilega, fræðandi og uppbyggjandi ferðalag. Sumir sem leggja af stað eru ákveðnir í að kenna jóga eftir útskrift, aðrir fara í námið til eigin uppbyggingar. Þegar staðfestingargjald hefur verið innt af hendi fá nemendur aðgang að jógatímum á netinu og geta æft á eigin tíma. 

Námið fer fram að hluta til á vefnum og að hluta til í sal. Við byrjum á vefnum í byrjun júní 2026. Þá hittumst við á stuttum Zoom fundi, kynnumst rétt aðeins og förum yfir uppbyggingu námsins. Kennsluvefurinn verður opnaður að hluta, þannig að yfir sumarið getum við horft á kennsluefni um jógastöðurnar, hlustað á fyrirlestra um sögu jóga, og æft jóga heima í stofu með netjóga Amarayoga.

Við hittumst svo í sal þann 5. september. Yfir veturinn munum við eiga 8 helgar saman í salnum í Listdansskóla Hafnarfjarðar. Kennt verður á laugardögum kl 12-17 og á sunnudögum kl 9-17. Eftir því sem líður á veturinn verður svo opnað inn á ný svæði kennsluvefsins. Þegar við hittumst í sal förum við yfir það efni sem við skoðuðum síðast ásamt því að æfa verklega. 
Útskrift verður 2. maí 2027.


Dagsetningar:

Laugardagur 6. júní 2026: Stuttur Zoom fundur og opnað inn á kennsluvefinn.

5-6 september 2026

10-11 október 2026

7-8 nóvember 2026

5-6 desember 2026 

9-10 janúar 2026

6-7 febrúar 2026

6-7 mars 2027

3-4 apríl 2027

1-2 maí 2027

Markmiðið með náminu er:

- Að gefa nemendum öryggi við að framkvæma æfingarnar sjálf sem og að leiða aðra í gegnum þær. 

- Að kynna fyrir nemendum aðferðir til hugleiðslu og kosti þess að hugleiða. Að sýna hvernig kyrrð í huga helst í hendur við það að sitja í sjálfum sér af fullu öryggi.

- Að gefa góðan grunn af anatómískri þekkingu sem aftur gefur öryggi í æfingunum.

- Að þjálfa nemendur vel í að setja saman jógatíma af mismunandi gerðum, hvort sem þeir vilja leiða tíma í rólegu "hatha" jóga eða kraftmeira "vinyasa" flæði.

- Að fræða nemendur um bakgrunn kerfisins svo þeir séu vel meðvitaðir um muninn á raunveruleika og goðsögnum. 

- Að gefa forsmekk af því sem finnst í þessari endalausu gullkistu sem við köllum jóga.

Öll námsgögn eru innifalin, bæði handbækur og fyrirlestrar í gegnum vefinn. Einnig eru nemendur velkomnir að æfa í stöðinni meðan á náminu stendur, ef þeir búa nálægt stöðinni og geta nýtt sér tímana í töflunni. Nemendur hafa á meðan á náminu stendur aðgang að öllum tímunum sem fylgja 30x30 heimajóga, ásamt mörgum öðrum tímum á kennsluvefnum. 

Athugið að farið er fram á 100% mætingu svo ef þú tekur þátt þarf annað að víkja þessar kennsluhelgar. Að sjálfsögðu er tekið tillit til óviðráðanlegra aðstæðna.

Nauðsynlegt er að staðfesta þátttöku með greiðslu staðfestingargjalds - óafturkræfu - upp á 50.000.- Staðfestingargjaldið dregst svo af heildarupphæðinni.

Verð fyrir námið er 445.000.- staðgreitt fyrir 5. júní 2026, en velkomið að skipta niður í 4 greiðslur. Við það hækkar verðið um kr 25.000.- og skiptingin gæti litið svona út: 50.000.- í staðfestingu, 100.000.- fyrir fyrstu kennsluhelgi, 100.000.- 1. október 2026, 100.000.- í janúar 2027 og 120.000.- í febrúar 2027. Athugið að mörg stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til þessa náms.

​Síðasti mögulegi skráningardagur er mánudagurinn 1. júní 2026.
- **Event URL**: https://allevents.in/hafnarfj%C3%B6r%C3%B0ur/jógakennaranám-2026-2027/200029908713831
- **Event Categories**: health-wellness
- **Interested Audience**: 
  - total_interested_count: 0

## Ticket Details


## Event venue details

- **city**: Hafnarfjörður
- **state**: GU
- **country**: Iceland
- **location**: Helluhraun 18, 220 Hafnarfjörður, Iceland
- **lat**: 64.07756
- **long**: -21.94185
- **full address**: Helluhraun 18, 220 Hafnarfjörður, Iceland, Helluhraun 18, 220 Hafnarfjarðarkaupstaður, Ísland, Hafnarfjörður, Iceland

## Event gallery

- **Alt text**: Jógakennaranám 2026-2027
  - **Image URL**: https://cdn-az.allevents.in/events1/banners/475909a34d9ac5dc4e63c495297a23c2908ab0307a35ec41cd28f541e2661f95-rimg-w1200-h1200-dc1b1206-gmir?v=1775651431

## FAQs

- **Q**: When and where is Jógakennaranám 2026-2027 being held?
  - **A:** Jógakennaranám 2026-2027 takes place on Sat, 06 Jun, 2026 at 10:00 am to Sat, 06 Jun, 2026 at 10:00 am at Helluhraun 18, 220 Hafnarfjörður, Iceland, Helluhraun 18, 220 Hafnarfjarðarkaupstaður, Ísland, Hafnarfjörður, Iceland.
- **Q**: Who is organizing Jógakennaranám 2026-2027?
  - **A:** Jógakennaranám 2026-2027 is organized by Amarayoga.

## Structured Data (JSON-LD)

```json
[
    {
        "@context": "https://schema.org",
        "@type": "Event",
        "name": "Jógakennaranám 2026-2027",
        "image": "https://cdn-az.allevents.in/events1/banners/475909a34d9ac5dc4e63c495297a23c2908ab0307a35ec41cd28f541e2661f95-rimg-w1200-h1200-dc1b1206-gmir?v=1775651431",
        "startDate": "2026-06-06T10:00:00+00:00",
        "url": "https://allevents.in/hafnarfj%C3%B6r%C3%B0ur/jógakennaranám-2026-2027/200029908713831",
        "eventStatus": "https://schema.org/EventScheduled",
        "location": {
            "@type": "Place",
            "name": "Helluhraun 18, 220 Hafnarfjörður, Iceland",
            "address": {
                "@type": "PostalAddress",
                "streetAddress": "Helluhraun 18, 220 Hafnarfjarðarkaupstaður, Ísland",
                "addressLocality": "Hafnarfjörður",
                "addressRegion": "GU",
                "addressCountry": "IS"
            },
            "geo": {
                "@type": "GeoCoordinates",
                "latitude": "64.07756",
                "longitude": "-21.94185"
            }
        },
        "eventAttendanceMode": "https://schema.org/OfflineEventAttendanceMode",
        "description": "Skráning í jógakennaranámið 2026-2027 er hafin!\n\nAmarayoga býður upp á jógakennaranám sem er skráð hjá Jógakennarafélagi Íslands og Yoga Alliance of America. Það merkir að að minnsta kosti lágmarkskröfum er mætt í hverjum lið kennslunnar, sögu og heimspeki, anatómíu og hreyfifræði, kennslutækni, si",
        "organizer": [
            {
                "@type": "Organization",
                "name": "Amarayoga",
                "url": "https://allevents.in/org/amarayoga/24505807"
            }
        ]
    }
]
```