

# Event Details

- **Event Name**: Ævintýraferð fjölskyldunnar inn í Kverkfjöll og Öskju
- **Event Start and End Date**: Thu, 06 Aug, 2026 at 08:00 am – Sun, 09 Aug, 2026 at 06:00 pm
- **Event Description**: Ferðafélag Fljótsdalshéraðs og Náttúruskólinn fara í enn eina Ævintýraferð fjölskyldunnar en nú er farið inn í Kverkfjöll og Öskju þar sem þjóðsögurnar lifna við. Ferðin er farin 6. til 9. ágúst 2026

Verð 58.500 fyrir fullorðna og 24.500 fyrir börn.  Innifalið: Rúta, leiðsögn og gisting.

Ferð um einstakt landslag og náttúrufegurð þar sem þögnin er engu lík, þjóðsagaarfurinn lifnar við og auðvelt er að gleyma sér í andartakinu.

Dagur 1. Hittumst við hús FFF Tjarnarási 8 á Egilsstöðum kl 8:00 og hoppum um borð í fjallarútuna Frú Valgerði.

Ekið af stað inn í Kverkfjöll og stoppað verður á slóðum útilegumanna í Hvannalindum og gengið þar um með leiðsögn frá þjóðgarðinum. Komið í Sigurðarskála seinnipartinn, þar sem hópurinn kemur sér notalega fyrir. Kvöldið nýtt til leikja, sögustundar og gleði í ágúströkkrinu.

Dagur 2. Í dag er gengið um nágrenni Sigurðarskála. Fyrir hádegi verður vappað upp á Virkisfell sem er um 4 km ganga fram og til baka og njótum stórkostlegs útsýnis yfir svæðið. Eftir hádegi ökum eða göngum við inn að jökulsporði og öndum að okkur kyrrð og krafti jökulsins. Göngulengd inn að jökli er 4 km.

Gistum aftur í Sigurðarskála um kvöldið og nýtum það til samveru og óbyggðakvöldvöku.

Dagur 3. Þessi dagur verður sannarlega stútfullur af mikilfenglegri náttúru. Höldum af stað kl 8:00 að eldstöðinni í Öskju.  Þegar komið er í Öskju þá er farið inn í hið kyngimagnaða Drekagil og inn að sprengigígnum stórfenglega Víti. Þessi dagur samanstendur af þægilegum göngum í styttri kantinum. Farið til baka í Sigurðarskála og gist síðustu nóttina þar.

Dagur 4. Tökum daginn snemma, kveðjum víðernin og allar þær verur og vættir sem þar búa. Við keyrum áleiðis heim með viðkomu í Möðrudal og Skessugörðum og kíkjum eftir skessunum sem hlóðu garðinn. Áætluð heimkoma til Egilsstaða er seinnipartinn.

Ferðin er samstarf Ferðafélags Fljótsdalshéraðs og Náttúruskólans og er styrkt af Héraðsverki. @natturuskolinn.is
- **Event URL**: https://allevents.in/egilsstadir/Ævintýraferð-fjölskyldunnar-inn-í-kverkfjöll-og-Öskju/200029691060935
- **Event Categories**: 
- **Interested Audience**: 
  - total_interested_count: 208

## Ticket Details


## Event venue details

- **city**: Egilsstadir
- **state**: NM
- **country**: Iceland
- **location**: Tjarnarás 8, 700 Egilsstaðir, Iceland
- **lat**: 65.25917
- **long**: -14.40034
- **full address**: Tjarnarás 8, 700 Egilsstaðir, Iceland, Tjarnarás 8, 700 Fljótsdalshérað, Ísland, Egilsstadir, Iceland

## Event gallery

- **Alt text**: Ævintýraferð fjölskyldunnar inn í Kverkfjöll og Öskju
  - **Image URL**: https://cdn-az.allevents.in/events9/banners/02b764c59f4ff0df07c56d8d9b1d4dd580a905858b91615761910e080b949c0d-rimg-w1200-h800-dca7d6fe-gmir?v=1785152506

## FAQs

- **Q**: When and where is Ævintýraferð fjolskyldunnar inn i Kverkfjoll og Oskju being held?
  - **A:** Ævintýraferð fjolskyldunnar inn i Kverkfjoll og Oskju takes place on Thu, 06 Aug, 2026 at 08:00 am to Sun, 09 Aug, 2026 at 06:00 pm at Tjarnaras 8, 700 Egilsstaðir, Iceland, Tjarnaras 8, 700 Fljotsdalsherað, Island, Egilsstadir, Iceland.
- **Q**: Who is organizing Ævintýraferð fjolskyldunnar inn i Kverkfjoll og Oskju?
  - **A:** Ævintýraferð fjolskyldunnar inn i Kverkfjoll og Oskju is organized by Ferðafelag Fljotsdalsheraðs.

## Structured Data (JSON-LD)

```json
[
    {
        "@context": "https://schema.org",
        "@type": "Event",
        "name": "Ævintýraferð fjölskyldunnar inn í Kverkfjöll og Öskju",
        "image": "https://cdn-az.allevents.in/events9/banners/02b764c59f4ff0df07c56d8d9b1d4dd580a905858b91615761910e080b949c0d-rimg-w1200-h800-dca7d6fe-gmir?v=1785152506",
        "startDate": "2026-08-06",
        "endDate": "2026-08-09",
        "url": "https://allevents.in/egilsstadir/Ævintýraferð-fjölskyldunnar-inn-í-kverkfjöll-og-Öskju/200029691060935",
        "location": {
            "@type": "Place",
            "name": "Tjarnarás 8, 700 Egilsstaðir, Iceland",
            "address": {
                "@type": "PostalAddress",
                "streetAddress": "Tjarnaras 8, 700 Fljotsdalsherað, Island",
                "addressLocality": "Egilsstadir",
                "addressRegion": "NM",
                "addressCountry": "IS"
            },
            "geo": {
                "@type": "GeoCoordinates",
                "latitude": "65.25917",
                "longitude": "-14.40034"
            }
        },
        "eventAttendanceMode": "https://schema.org/OfflineEventAttendanceMode",
        "description": "Ferðafélag Fljótsdalshéraðs og Náttúruskólinn fara í enn eina Ævintýraferð fjölskyldunnar en nú er farið inn í Kverkfjöll og Öskju þar sem þjóðsögurnar lifna við. Ferðin er farin 6. til 9. ágúst 2026\n\nVerð 58.500 fyrir fullorðna og 24.500 fyrir börn.  Innifalið: Rúta, leiðsögn og gisting.\n\nFerð um e",
        "organizer": [
            {
                "@type": "Organization",
                "name": "Feraflag Fljtsdalshras",
                "url": "https://allevents.in/org/ferðafélag-fljótsdalshéraðs/24508435"
            }
        ]
    }
]
```