Austurbrú, Búnaðarsamband Austurlands og Eygló bjóða íbúa Austurlands velkomna á fundi víða um fjórðunginn þar sem fjallað verður um varmadælur og aðra valkosti í húshitun, auk þeirra styrkmöguleika sem standa til boða fyrir heimili sem vilja spara orku og lækka rekstrarkostnað.
Sérfræðingur frá Umhverfis- og orkustofnun mun halda fræðsluerindi og verkefnastjóri Eyglóar verður einnig með stutta kynningu á varmadælum. Að loknum kynningum verður tími fyrir umræður og spurningar frá fundargestum.
Fundarröðin verður á eftirfarandi stöðum:
3. desember
12:00 - Hjaltalundur, Hjaltastaðaþinghá
16:00 - Gamla kaupfélagið, Breiðdalsvík
19:30 - Hótel Framtíð, Djúpavogi
4. desember
12:00 - Mikligarður, Vopnafirði
7. janúar
12:00 - Végarður, Fljótsdal
16:00 - Fróðleiksmolinn, Reyðarfirði
20:00 - Brúarás, Jökulsárhlíð
8. janúar
12:00 - Fjarðaborg, Borgarfirði eystri
Hlökkum til að sjá ykkur!