Sjávargrillið blæs til golfveislu á Húsavík!
Tveggja daga liðakeppni 27 - 28 júní
Á föstudeginum verður spilaður betri bolti og Texas Scramble á laugardeginum.
Stuð og stemmning á vellinum báða dagana.
Skráning fer fram í gegnum tölvupóst:
bW90YW5lZm5kIHwgZ2hnb2xmICEgaXM=
Þátttökugjald er 44.000kr. fyrir lið.
Greiðsla þarf að hafa borist í síðasta lagi viku fyrir mót.
Geggjaðir verðlaunapakkar fyrir efstu þrjú sætin
1. sæti: Vinningar að verðmæti 100 þús kr (2x50 þús)
2. sæti: Vinningar að verðmæti 80 þús kr (2x40 þús)
3. sæti: Vinningar að verðmæti 60 þús kr (2x30þús)
Nándarverðlaun á báðum par 3 holum vallarins báða dagana.
- Veitt verða nándaverðlaun í bæði karla og kvennaflokki!
- Það gera 8 nándarverðlaun í heildina!
Auka verðlaun - Dregið úr skorkortum
Mótinu verður svo slúttað með tveggja rétta kvöldverði og skemmtun í golfskálanum á laugardagskvöldinu. Fordrykkur í boði Vífilfells.
Forgjöf liðs er samanlögð leikforgjöf deilt í fjóra.
Hámarksleikforgjöf karla: 24
Hámarksleikforgjöf kvenna: 36
Ef skráning er góð verður ræst út með tvöfaldri ræsingu fyrir og eftir hádegi
Nánari upplýsingar um mat og nákvæma vinningaskrá kemur síðar, fylgist vel með
Birt með fyrirvara um breytingar.
Mótanefnd GH áskilur sér rétt til breytinga á uppsetningu mótsins ef þörf krefur.