Í fyrsta skiptið saman á sviði á Akureyri: KK, Mugison og Jón Jónsson.
Á þessum tónleikum geta gestir átt von á blöndu af hlátri, hlýju, magnaðri tónlist og ógleymanlegri upplifun sem gerir jólamánuðinn enn betri.
Með í för verður hinn hæfileikaríki Þorleifur Gaukur.
🎟️ Forsala miða verður inn á tix.is og hefst miðvikudaginn 17. september. Þeir sem eru á póstlista tix.is komast fram fyrir röð og geta keypt miða frá og með 16. sept.
📧 Ertu með hóp? Þá máttu senda email á YXJndmlkYnVyZGlyIHwgZ21haWwgISBjb20=
ATH aðeins 250 miðar í boði. Miðaverð litlar 9.500 kr.
Tónleikarnir verða án hlés og standa í 75 mínútur.
Ekki er selt í númeruð sæti heldur er frjálst sætaval. Því mælum við eindregið með að mæta snemma til að ná góðum sætum 🪑
⛪️ Kirkjan opnar 30 mín áður en að tónleikarnir hefast.